Nýr áfangi, RST er nú vottaður þjónustu- samstarfsaðili MR Reinhausen

4. Júní 2026

Fyrir 100 árum hóf MR Reinhausen framleiðslu á Þrepaskiptum (On load tap changer) samkvæmt einkaleyfi Dr. Jansen. Þann 20 Júní var haldin 100 ára afmælishátíð í Berlín af þessu tilefni, þar sem MR og RST Net skrifuðu undir samning þar sem RST gerist vottaður þjónustu- samstarfsaðili MR Reinhausen.

Þessi samningur er mikil viðurkenning fyrir RST Net, þar sem MR er leiðandi fyrirtæki í orkuiðnaði og í dag nota allir fremstu framleiðendur aflspenna í heiminum Þrepaskipta frá MR. Samningurinn gerir RST Net að vottuðum þjónustuaðila, með starfsmenn sem framkvæmt geta þrepaskiptaupptektir hvar sem er í heiminum.

Á þriðja áratug síðustu aldar kölluðu orkufyrirtæki eftir leiðum til að stjórna spennu hraðar. Áskorunin var að finna leið til að skipta um vindingahlutfall aflspennis undir álagi. Dr. Jansen fékk hugmyndina og Maschinenfabrik Reinhausen (MR) hafði hæfileikana til að koma henni í framkvæmd. Niðurstaðan var fyrsta frumgerð heims af hraðvirkum þrepaskipti (On load tap changer) árið 1926.

MR er enn í fararbroddi í nýjungum innan orkugeirans og kynnir nú til sögunnar ETOS® – Fyrsta opna staðallinn fyrir stafrænan rekstur spennubreyta.

Spennubreytiflotinn er að eldast og krefst snjallrar flotastýringar á þessum mikilvæga innviðabúnaði og breytt samsetning raforkuframleiðslu gerir rekstur raforkukerfisins flóknari. Hvað getum við gert í því? Lausnin er að nota snjallan búnað. Með ETOS® – innbyggða spennubreytastýrikerfinu – býður MR upp á opna, einingakerfislausn til að fylgjast með, stjórna, stilla og stafræna spennubreyta. Þetta er fyrsta opna stýrikerfið í heiminum fyrir snjalla spennubreyta.

Heildarhugmyndin, sem samanstendur af skynjurum, tækjum til stýringar, reglunar og eftirlits, auk heildareftirlits með flota, gerir kleift að stjórna og fylgjast með spenninum á snjallan hátt.

Á Íslandi verður RST Net fulltrúi MR í ETOS lausnum með sérþjálfaða starfsmenn til að þjónusta spennaflotann í landinu.