RST Net hefur mikla reynslu af uppsetningu og endurnýjun búnaðar í aðveitustöðvum og gas- og lofteinangruðum tengivirkjum auk hjálpar- og stjórnbúnaðar.
RST Net sinnir einnig lagningu jarðstrengja, uppsetningu og tengivinnu dreifi- og flutningslína.
Tengivirki
AIS/GIS
RST Net hefur langa reynslu af uppsetningu búnaðar í bæði gas- og lofteinagruðum tengivirkjum og hefur komið að uppsetningu margra af stærstu tengivirkjum landsins.
RST Net hefur ýmist unnið við uppsetningu búnaðar sem undirverktaki framleiðanda tengivirkjana eða sem aðalverktaki þar sem RST Net hefur séð um hönnun, smíði á undirstöðum, innkaup búnaðar og uppsetningu.
Meðal tengivirkja sem RST Net hefur sett upp eru gaseingruð tengivirki í Vatnsfellsvirkjun, Sultartangavirkjun, Fljótsdalsstöð og tengivirki Landsnets við Kolviðarhól. einnig hefur RST Net sett upp lofteinagruð tengivirki m.a. í tengivirki Landsnets á Brennimel, Reykjanesvirkjun, Mjólkárvirkjun, Hryggstekk og víðar.
Aflspennar
RST Net býr yfir sérfræðiþekkingu á aflspennum og olíumeðhöndlun við uppsetningu þeirra.
RST Net hefur sérhæft sig í samsetningu aflspenna og hefur yfir að ráða nauðsynlegum tækjabúnaði til olíumeðhöndlunar við uppsetningu þeirra.
Starfsmenn fyrirtækisins fara reglulega í þjálfun, m.a. hjá stærsta framleiðanda álagsþrepaskipta aflspenna, Maschinenfabrik Reinhausen (MR) í Þýskalandi.
Í samvinnu við MR veitir RST Net varahlutaþjónustu og sérfræðiaðstoð við upptektir á þrepaskiptum.
Varmadælur
RST Net tekur að sér uppsetningu og tengingu á aflmiklum varmadælum.
RST Net hefur yfir að ráða bæði mannskap og þekkingu til að takast á við flókin verkefni eins og uppsetningu á varmadlæustöðvum þar sem flókin vél- og rafbúnaður leikur lykilhlutverk.
Á myndinni má sjá varmadæluna sem RST Net setti upp í Vestmannaeyjum.
Stjórn- og varnarbúnaður
Hönnun, smíði, forritun og framleiðsluprófanir á stjórnbúnaði fyrir veitukerfi og iðnað. Uppsetning, gangsetning og prófanir á verkstað auk þjálfunar rekstraraðila í notkun á búnaðinum.
RST Net býður, ásamt traustum erlendum samstarfsaðilum og birgjum, upp á heildarlausnir sem byggja á reynslu og víðtækri þekkingu á stjórn- og varnarbúnaði.
Tæknimenn RST Net hafa langa reynslu og þekkingu á forritun RTU útstöðva og PLC véla svo sem PCM600 útstöðva frá ABB og PLC vélum frá iðntölvuframleiðendum, Allen Bradley / Rockwell, Siemens og fleirum. Fyrir stjórn- og varnarbúnað í stærri framkvæmdaverkum býður RST Net upp á heildarlausnir, þar sem búnaður og stjórnskápar sem hýsa búnaðinn er í samræmi við kröfulýsingu verkkaupa og alþjóðlega staðla. Að lokinni samsetningu og innbyrðis tengingum á fullbúnum stjórnskápum eru framleiðsluprófanir (FAT) framkvæmdar á töfluverkstæði fyrirtækisins áður en skáparnir eru fluttir á verkstað til uppsetningar.