Nýtt Olíumeðhöndlunartæki frá Micafluid​

10. Mai 2024

RST Net hefur fengið afhent nýtt olíumeðhöndlunartæki frá Micafluid  í Swiss. Þetta tæki kemur í stað eldra tækis frá 1976 og hefur þjónað sínu hlutverki vel. 

Þetta tæki afkastar 1000 til 3000 l/h og hefur 45 kW hitara sem eru í 3 þrepum.

Þá eru öll olíumeðhöndlunartæki hjá RST Neti frá Micafluid, minnsta afkastar 300 l til 1000 l/h og getur unnið olíu með spenna í rekstri. Nýjasta tækið sem er á myndinni afkastar 1000 l til 3000 l/h og elsta tækið frá 2010 afkastar 3000 l til 9000 l/h og er með 145 kW hitara.