RST Net framúrskarandi fyrirtæki
Ragnar Karl Ingason (t.v.) fyrirtækjaráðgjafi hjá Íslandsbanka kom með köku í tilefni dagsins.Við hlið Ragnars má sjá Arnhildi Ásdísi, Þórarinn og Sigmund.

Fyrirmyndarfyrirtæki 7 ár í röð

30. október 2023

Framúrskarandi fyrirtæki fimm ár í röð og fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri sjö ár í röð

RST Net hefur hlotið þann heiður að vera í hópi framúrskarandi fyrirtækja hjá Creditinfo fimmta árið í röð. Þar að auki hefur RST Net verið fyrirmyndar fyrirtæki í rekstri 2017-2023 að mati Viðskiptablaðsins og Keldunnar. 

Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði Creditinfo, til dæmis þarf fyrirtækið að:

    • skila ársreikningi á réttum tíma
    • hafa skilað rekstrarhagnaði sl. 3 ár
    • vera með a.m.k. 100 m.kr. eignir síðustu þrjú ár. Sjá frekari skilyrði hér.

Við hjá RST Net erum stolt af þessari viðurkenningu og þökkum okkar góða starfsfólki fyrir þennan frábæra árangur.