Framúrskarandi fyrirtæki 2021
22. október 2021
RST Net í hópi framúrskarandi fyrirtækja þriðja árið í röð
RST Net hefur hlotið þann heiður að vera í hópi framúrskarandi fyrirtækja hjá Creditinfo þriðja árið í röð. Þar að auki hefur RST Net verið fyrirmyndar fyrirtæki í rekstri 2017-2021 að mati Viðskiptablaðsins og Keldunnar.
Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði Creditinfo, til dæmis þarf fyrirtækið að:
- skila ársreikningi á réttum tíma
- hafa skilað rekstrarhagnaði sl. 3 ár
- vera með a.m.k. 100 m.kr. eignir síðustu þrjú ár. Sjá frekari skilyrði hér.
Við hjá RST Net erum stolt af þessari viðurkenningu og þökkum okkar góða starfsfólki fyrir þennan frábæra árangur.